I am he as you are he as you are me as we are all together

I Am The Walrus

26.03.2008 18:17:29 / ingunn

Fjöldamorð í Húsasmiðjunni um páskana

Fjöldamorð í Húsasmiðjunni um páskana

Þetta er ótrúlegt... ég veit ég borða hiklaust egg og kjúklingabringur ... en þetta er nú þokkalega brútal....

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 08:37:35 / ingunn

GREMJA

Ég setti i-podinn minn í þvottavélina um helgina. Það vantaði ekki að hann væri hreinn og fínn í morgun þegar ég þurfti að nota hann...........en alveg dauður :^):^):^)

:cry::cry:


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 14:56:38 / ingunn

Barnablogg....

Við erum búin að opna nýja heimasíðu fyrir litla ófædda barnið. Þið getið skoðað þar 12 vikna sónarmyndina þeir sem hafa ekki séð hana og fleira þegar þar að kemur ;)
http://www.fannarsbarn.barnaland.is/ sendið mér línu í mail og ég sendi ykkur lykilorðið.



» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 16:18:45 / ingunn

Blogg-leti

Ég hef verið að ganga í gegnum svakalega blogg-leti að undanförnu. Það hefur margt runnið til sjávar síðan 21.des. Ég varð 25 ára þann 5.janúar og Fannar varð 29 ára þann 20.janúar. Framkvæmdirnar gengu mjög vel í janúar og er annað herbergið eiginlega tilbúið. Það verður fjölgun í fjölskyldunni í sumar..........nei við erum ekki að fá okkur annan kött. Við eigum von á okkar fyrsta barni og er ég sett 08.08.08 J Við erum ótrúlega spennt yfir litla krílinu okkar. Við fórum í sónar og hnakkaþykktarmælingu um daginn og leit allt ljómandi vel út. Litla krílið var með mikla sýniþörf og tók nokkrar flottar fimleikaæfingar fyrir okkur. Ég er búin að vera að drepast úr einhverjum túrverkjum, ógleði og þreytu síðustu 14.vikurnar. Ég hélt að þetta ætti að fara líða hjá eftir 12.viku en ég tók uppá því að fara kasta upp í þessari viku.......jakk:S

BA-verkefnið gengur ágætlega en svona rannsókn tekur allt annað en stuttan tíma. Kennarinn minn er líka alltaf að fá nýjar og nýjar hugmyndir með hvernig vinna á úr gögnunum þannig að ég hef eiginlega bara verið að telja og telja gögn síðan í byrjun janúar. Hún sagði að þegar ég yrði búin að vinna úr niðurstöðunum þá myndi ég vilja brenna gögnin og ég held að hún hafi haft rétt fyrir sér. Ég er að vona að þetta verði síðasta helgin sem fari í þessi gagnavinnslu.

Ég er byrja á mánudaginn að taka þátt í rannsókn sem verið er að gera í þremur leikskólum í Reykjavík.......ótrúlega spennandi verkefni en ég kvíði svolítið fyrir að ég sofni einhvers staðar á víðavangi úr þreytu J


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 22:03:50 / ingunn

TAUGAÁFALL

Fannar keypti handa mér My so called life úti í Glasgow. Ég horfði á þessa þætti og tók þá flesta upp af RÚV árið 1995. Þetta eru bestu unglingaþættir sem hafa verið gerðir en þeim var cancelað vegna fáránlegrar ástæðu......eins og svo oft. Það hefur verið ómögulegt að verða sér út um þá á DVD þangað til núna í haust......loksins fyrir mig. Anyways.......ég var í góðum gír að horfa á “nýju” þættina mína klukkan 3 í nótt þegar ég heyri eitthvað skrítið hljóð eins og í útidyrahurðinni og síðan eitthvað urr í Láka. Ég er þessi dæmigerða manneskja sem hugsa það versta “ætli það sé einhver hér inni”....en hristi þær síðan bara af mér. Ég set á pásu og hlusta betur hvort ég heyri eitthvað.......en heyri ekkert og ætla bara að ýta aftur á play þegar.......ohhh my god.....hjartað stoppaði bókstaflega.......það stendur allt í einu maður á brókinni fyrir framan mig og horfir á mig. Ég fæ hjartsláttartruflanir við tilhugsunina. Ég er ekki að grínast......mér brá svo að ég sá svarta díla, adrenalínið fór útí alla útlimi, ég stökk á fætur og röddin varð að einhverju undarlegu hátíðnihljóði sem ég hef aldrei heyrt áður. Svokallað “fight or flight” viðbragðið virkar greinilega mjög vel hjá mér. Þetta fór allt saman vel............maðurinn rataði sína leið og ég lifði þetta af. En ef ég upplifi þetta aftur þá er ég ekki viss um að ég lifi það af.  

Ég segi bara gleðileg jól og farsælt komandi ár. Passið að læsa vel hjá ykkur um jólin J


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 13:32:26 / ingunn

KATTARFJÖR

Ég vaknaði fyrst í morgun við að Láki var að leika sér við eitthvað sem heyrðist of mikið í.........ég dröslaðist á fætur til að athuga hvað prakkarinn væri að gera. Veskið mitt lá opið á gólfinu og hann var bókstaflega búinn að tæma það. Húslyklar, bíllyklar, peningaveskið, allt makeup-ið mitt og hann var að naga rándýran clarins púður bursta. Ég gæti aldrei verið með hund......því þá hefði allt dótið verið ónýtt en litlu tennurnar hans ná frekar lítið að skemma. Ég fór síðan bara aftur að sofa þegar ég var búin að taka allt þetta skemmtilega dót af honum. Ég vaknaði síðan aftur eftir klukkutíma við mikil urr og læti.......þá voru komnir tveir óboðnir gestir í heimsókn og slógust þeir eins og brjálæðingar inní eldhúsi og síðan þvottahúsi. Láki og Kía földu sig bara hjá mér þangað til að þeir rötuðu með lætin út. Það er ekkert grín að koma nálægt ókunnugum köttum í slíkum ham.........þannig að fyrir mitt litla líf var ég ekkert að blanda mér í þetta mál.

varð að smella þessari krúttlegu mynd með :D:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 16:15:06 / ingunn

mælingarnar búnar

Jæja, loksins eru mælingarnar í Keflavík búnar. Það var síðasti dagurinn í dag. Þar sem ég er alveg þvíllíkt lífshrædd manneskja var ég geðveikt stressuð yfir því að þurfa að keyra á milli á hverjum degi........en reykjanesbrautin er ótrúlega þægileg í akstri. Ég átti stundum í erfiðleikum með að halda mér vakandi......eitthvað sem mér datt aldrei í hug að gæti hráð mig í akstri. Ég er samt mjög fegin að þetta sé búið. Ég fór í Ikea í gær og reyndar í dag J og keypti allskonar dót fyrir jólin. Ég hlakka svo til jólanna :D:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 15:25:37 / ingunn

Reykjanesbrautin & fyrirlestur

Jæja, það er búið að vera frekar mikið að gera hjá mér síðustu þrjár vikurnar. Lokaverkefnið mitt er loksins komið í gang og gengur það mjög vel. Ég þarf að vera mætt í Keflavík klukkan 8:30 á morgnana......úff, hvað ég sakna þess að snooza.:S Ég er búin að vera stressa mig á einum fyrirlestri alla önnina en hélt hann í gær og er eins og heilu fjalli hafi verið létt af mér. Geðveikt fegin. Núna er jólastemmingin að magnast upp í mér.......það styttist óðum í bakstur, jólaskreytingar og pakkainnkaup :D:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 16:32:22 / ingunn

GUBB

Þessi umræða er að fara í mínar fínustu. SMÁÍS er að grenja yfir því að vermætin séu svo mikil sem þeir tapa vegna ólöglegs niðurhals. Ég held að þeir séu að tapa meira á því að stofna herferð gagnvart ólöglegu niðurhali. Snæbjörn framkvæmdarstjóri SMÁÍS segir að fólk geri sér ekki grein fyrir verðmætunum sem tapast á þessu. Ég held að hann geri sér ekki grein fyrir því að þótt þeim takist að stöðva ólöglegt niðurhal þá renna þessir peningar ekkert frekar beint í vasann hjá SMÁÍS. Ég vona allavega ekki. Ég hvet fólk til að versla sínar vörur frekar erlendis frá......ekki styðja þetta.

P.S. ég held að það sé komin tími til að segja stöð 2 upp!!!! :^)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 16:50:27 / ingunn

Google myndar topplausa konu í sólbaði

Nú er ekki lengur hægt að fara út í garð allsber......damn it. Kellingar greyið í sakleysi sínu uppá þaki heima hjá sér. Þróunin er orðin svo hröð. Myndin er samt ennþá frekar óskýr.......það er varla hægt að sjá hvort þetta sé maður í speedo, kona í bikini buxum eða mjög illa snyrt kona:lol::lol: Hvað er langt þangað til að við getum séð svona "smáatriði"? Best að hafa varan á :lol:

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 18:42:19 / ingunn

hrói höttur....

Ég gæti ekki verið meira ósammála því að þeir sem nota torrent.is séu að stela frá “fátæku fólki” til að gefa nískupúkum sem tíma ekki að borga fyrir það efni sem er órjúfanlegur hluti af lífi þeirra. Páll Óskar talar líka um það að ef það eru 300 manns sem eru að stela frá honum....já,já.....hann ætlar bara í mál við þá alla og lögfræðingurinn hans fær fullt af peningum........vúbbs “fátæku fólki.” Fólk hefur mismunandi skilning á því hvað er að vera fátækur.  

Ok......tónlist, tölvuleikir, kvikmyndir og sjónvarpsþættir er svo sannarlega órjúfanlegur hluti af lífi okkar allra. Það er líka notað þokkalega gegn okkur hér á Íslandi. Þú ferð ekki inní næstu verslun og kaupir þér tvo geisladiska og tvær bíómyndir án þess að eyða 10 þúsund kalli í mestu okurbúllunum. Mér finnst fáránlegt að kalla fólk nískupúka fyrir að tíma ekki að borga þetta okurverð á tónlist og kvikmyndum sem okkur, hér á Íslandi,  er boðið uppá. Ég kaupi því allt mitt efni á www.amazon.co.uk þar sem verðið þar er strax helmingi ódýrara, ég er ekki með neina sundlaug í garðinum hjá mér. Það er alveg hægt að rökræða um það hver er að stela af hverjum. Mér finnst álagningin í verslunum á Íslandi vera lítið annað en þjófnaður og mætti alveg athuga það líka. Einnig hefur bíómiðinn hækkað geðveikt mikið og að taka spólu, eigum við að ræða það eitthvað......

Skoðið fréttina á Vísir.is


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 21:07:38 / ingunn

Pössun

Við vöknuðum klukkan átta í morgun.....suðum fisk handa köttunum og lögðum síðan í hann til bróðir míns að passa. Dagurinn hefur gengið mjög. Litla frænka var sofnuð um hálfníu.........hún er svo dugleg. Farin að standa upp við allt og spjallar og spjallar. Ég held að það sé ekki langt í "Ingunn". :D

Litli strákurinn hans Grettis er 5.ára og hefur hjálpað okkur mikið að hafa ofan fyrir litlu systir sinni.

Hann spurði mig í kvöld: "Hvað segirðu gott?"

Ég: "Bara fínt"

Hann: "Já, sæll.......eigum við að ræða það eitthvað"

Oh my god....ég hélt að ég myndi deyja úr hlátri. Næturvaktin hefur víða áhrif. :D:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 16:10:24 / ingunn

Ég er að "horast"

Ég hef legið í flensu síðan um helgina. Ég er búin að vera með hausverk, beinverki, illt í hálsinum, hita, óstöðvandi hnerra og leka úr augum og nefi. JAAAKK. Mér líður eins og ég sé með fullan haus af hor þannig að lærdómurinn er ekki búin að ganga neitt voðalega vel þessa dagana. :S

Þetta er í fyrsta skipti í mörg ár sem ég fæ flensu og henni fylgir ekki ógeðslegt lungnakvef og mikill slímhósti........uuuhhmmm skrítið. Ég þyrfti að gera rannsókn á þessu.  ;)

Fyrir þá sem hafa frekari áhuga á hor, kíkið á þetta Hvaðan kemur horinn?


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 14:55:28 / ingunn

Myndir vikunnar :)

Við fórum á alveg brilliant mynd á föstudaginn. Stardust er skemmtilegt ævintýri sem er sambland af spennu, drama og gríni. Þetta er besta mynd sem ég hef séð síðan HOT FUZZ. Þegar ég hlæ upphátt í bíó þá fær myndin 8,5 í einkunn í kladdanum mínum. Leikararnir Charlie Cox, Claire Danes, Robert De Niro og Michelle Pfeiffer voru öll mjög góð. Mæli með henni í bíó.

Ég sá líka myndina Zodiac í síðustu viku og hún fær 7,5 í einkunn í kladdanum mínum. Myndin er byggð á bókum Robert Graysmith sem fjalla um raðmorðingjann Zodiac sem herjaði á San Francisco á sjöunda og áttunda áratugnum. Hún er leikstýrð af David Fincher sem er þekktur fyrir myndir eins og Seven og Fight Club. Hún er 158 mínútur og þegar 2 tímar voru búnir var ég farin að kíkja á klukkuna......þannig að lopin er teygður aðeins í lokin. Fyrir minn smekk bara mjög góð videospóla.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 14:15:52 / ingunn

síðasta kvöldmáltíðin

s%ED%F0asta%20kv%F6ldm%E1lt%ED%F0in

hehehe.....snilld:lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Myndasöfn